21.05.2007 22:59:04 / Bjarney
Ég hef sagt skilið
við þessa síðu í bili því ég fann mér nýja og held því fram
að hún sé betri en við skulum nú sjá til hvernig það fer. Sú
nýja er www.bjarney.blogg.is og fara nú fljótlega að
flykkjast blogg þar inn eftir þessa drepleiðinlegu (
fyrirfram ákveðið ) prófaviku sem er framundan.
Ekki nema 5 blogg voru rituð hér með þessu meðtöldu svo við skulum
nú vona að þau verðir dálítið mikið fleiri á hinni síðunni.
Takk fyrir mig og tékkið á hinni
»
21.05.2007 22:57:54 / Bjarney
Ég hef sagt skilið
við þessa síðu í bili því ég fann mér nýja og held því fram
að hún sé betri en við skulum nú sjá til hvernig það fer. Sú
nýja er www.bjarney.blogg.is og fara nú fljótlega að
flykkjast blogg þar inn eftir þessa drepleiðinlegu (fyrirfram
ákveðið) prófaviku sem er framundan.
Ekki nema 5 blogg voru rituð hér með þessu meðtöldu svo við skulum
nú vona að þau verðir dálítið mikið fleiri á hinni síðunni.
Takk fyrir mig og tékkið á hinni
»
12.05.2007 23:55:14 / Bjarney
Má bjóða þér í
partý? við dönsum bara og syngjum við tónlistina á efri
hæðinni.
Brjálað partý hjá útlendingunum fyrir ofan okkur þó þau syngi
akkúrat núna að þetta sé the lonliest day of their life. Já þó það
hafi nú oft verið partý hjá eigendunum á undan þessum þá jafnast
ekkert af því við þetta partý. Ónei, ég heyri tónlistina ónveju
hátt niður, bassinn ætlar að sprengja húsið og allir að syngja og
hoppa þannig að ég get ekki hlustað á mína eigin tónlist. En þetta
eru þó ágæt lög svo ég lifi. Liggur þó við farin að dansa hérna
með, finn stemminguna alveg niður í okkar íbúð.
Ég var svo
heppin að vera að vinna í kvöld svo ég missti af Júróvision. Á
fimmtudeginum var þó komið með sjónvarp á bautann fyrir
starfsfólkið og horft var á svo við Mæja bjuggumst við að svo væri
líka í kvöld en það var nú því miður ekki en við kláruðum þó mjög
snemma okkar verk miðað við vanalega og fórum um 10 leitið heim.Ég
væri nú samttil í að vita hvaða lög lentu í 1., 2., og 3. sæti ef
þið gætuð sagt mér það?
Já, svo frétti maður að það hefði ekki munað nema 12 stigum að
Eiríkur hefði komist áfram. Svo við lentum í 13 sæti allt þessum
fáranlegu austurlanda þjóðum að kenna sem tróðu sér inní þessa
keppni og kjósa hvor aðra alveg sama hversu hræðilega leiðinleg
lögin þeirra eru. Okei ég er orðin bitur hérna. Nei allavega
fylgdist maður ávallt með Júróvision þegar maður var yngri en núna
komumst við ekki uppúr forkeppninni og munum eflaust aldrei gera
svo þetta er lítt gaman núna.
Ég er komin með hugmynd af svo ógeðslega flottri peysu sem ég er
búin að hanna í huganum að mig er farið að dauðlanga til að sauma
hana og þá helst NÚNA. En ég þarf að finna töff efni. Íunn var svo
að biðja mig um að sauma fyrir sig peysu/bol eða hvað sem þetta er
eins og ég saumaði og hannaði sjálf fyrir ekki svo löngu, svo
kannski fer maður að sauma meira og þá líka fyrir aðra og græða e-ð
smotterí á því. Það væri allavega virkilega næs því þetta er það
sem mig langar að vinna við að hluta allavega.
Red hot cili peppers komnir á fóninn, ég kvarta sko alls ekki.
ahh þeir slökktu á þeim.
Ég er orðin fíkill á fata-, skartgripa- og skósíður á netinu þar
sem maður bíður uppí hlutina. Er búin að kaupa þónokkuð og á von á
ógeðslega flottri flík á næstunni. Held reyndar að ég þurfi aðeins
að fara slaka á svo launin mín fari ekki öll í þetta í hverjum
mánuði. Langar að safna mér fyrir vespu sem ég verð ekki lengi að
safna mér fyrir ef ég eyði peningunum ekki af óþarfa. Svo þarf
maður að fara leggja visst inn á mánuði því ég er svo sannarlega
búin að finna draumabílinn og það er sko ekki mustang lengur heldur
Dodge Charger SRT8. Nett fallegur bíll sem ég stefni á að kaupa 18
ára að aldri enda smá dýr. Vil samt helst fá hann 17 ára en ég
klessi hann eflaust nýkomin með bílprófið. Já svona mikla trú hef
ég á mér. Hah en hörku vinnumaður verð ég að vera til að uppfylla
drauma mína.
Ég held ég fari bara að horfa á mynd til að þreyta mig heldur betur
mikið svo ég sofni einhverntíman útfrá tónlistinni.
Komment væri vel þegið, bless 
»
04.05.2007 14:07:29 / Bjarney
stelpa: ertu að labba heim til þín
ég: já
stelpa: hvar áttu heima?
ég: þarna í gulu blokkinni en þú?
stelpa: í Langholti
ég: okei
stelpa: þú getur sko labbað niður hérna og beygt
svo heim til þín
ég: já, ég veit
stelpa: hvað ertu gömul? ertu í 9. bekk?
ég: já, hvernig vissiru? hvað ert þú gömul?
stelpa: Ég veit það ekki alveg ...ég er bara svo
gáfuð *fliss* ég er í fjórða bekk
ég: okei
þögn ..bros
ég: ég ætla að labba hér niður, bless
stelpa: bææ
Ótrúlega lítil og sæt stelpa, dökk á lit, svart hár og ótrúlega sæt
bleik föt sem hún klæddist. Svo talaði hún líka ótrúlega blítt og
sætt.
Það þurfti ekki meira til að gleðja mig, ég var við það að knúsa
hana bless.
Ég stefni á Grenivík og Krókinn eftir samrændu þegar fólk hefur
tíma til að hitta mig, aldeilis sniðug hugmynd?
»
27.04.2007 22:36:30 / Bjarney
Ég var byrjuð vel á
nýju bloggi í fyrradag en hugur minn sneri sér að öðru og svo
ég vissi ekki fyrr en klukkan var orðin alltof mikið svo ég
slökkti bara á tölvunni og fór að lúlla með bros á vör eftir
gott kvöld á Grenivík. Þið eruð best elskurnar mínar, hlakka
ekkert smá til þegar þið komið í bæinn til mín.
Ég get ekki beðið þangað til samrænduprófin eru á enda. Ekki það
að ég sé að fara að taka þau, enn ár í það. Það eru bara allir svo
uppteknir útaf þeim og ég bara hangi heima að lesa Gísla sögu
Súrsonar. Er farin að skrifa öll verkefnin mín uppá nýtt og
flokkera allt skóladótið mitt, læri heima í stærðfræði þótt ég
þurfi ekki að gera það, geri verkefni á skólavefnum mér til
skemmtunar og ég veit ekki hvað og hvað. Neee okei ég er að ljúga
og ég veit það þetta var aldrei trúlegt. En ég les samt Gísla sögu
Súrsonar.
Heiðdís, þú ert ekki að taka samrænd próf. Heyrðu í mér ef þér
leiðist líka.
Ég væri ekkert á móti því að sleppa 10. bekk og fara beint á
Listnámsbrautina í VMA. Þú getur ekki ýmindað þér hvað ég kvíði
mikið fyrir því að þurfa að vera elst og hafa enga eldri krakka í
skólanum. Ó minn guð, ég dey.
Stundum langar mig bara að verða stór strax, flytja til Danmerkur
eftir framhaldsskólann og læra þar. Vonandi Reynir með en framtíðin
er enn óljós þó ég vildi að ég gæti bara ákveðið hana núna. Samt
langar mig ekkert að sleppa unglingsárunum, ég á eftir að gera
margt og prófa margt en samt e-ð svo lítil.
Gummi bróðir pabba og Kesorn eignuðust lítinn strák,
fimmtudagskvöldið 26. apríl. Hann var skýrður Sigurbjörn Tanit í
höfuðið á ömmu, Sigurhönnu og afa, Hermanni
Birni. Mér finnst það ofboðslega krúttlegt. Hann heitir jú
Tanit líka því móðir hans er ekki íslensk. Hlakka til að sjá hann.
Hann er víst ekki hvítur strákurinn, örugglega algjört rassgat.
Afskaplega stutt í mánaðarmótin sem þýðir ég fæ útborgað sem þýðir
VERSLA VERSLA VERSLA. Samt er ég búin að lofa mömmu að eyða ekki
öllu í föt. Sjáum til hvernig það mun ganga.
Komið gott, bæ.
»
23.04.2007 17:33:03 / Bjarney
Hér er ég stödd
aftur, langar ekki lengur að hafa bloggar.is síðu.
Ætla að láta að reyna á þetta og skella bloggum annað slagið inn
hvort sem ég hef e-a löngun til þess eður ei. Það er bara svo gott
að geta bloggað annað slagið um allt eða ekkert og hleypa e-u út á
skynsamlegan hátt þó það sé hálf tilgangslaust.
Pabbi kominn í land og því skellti ég mér í sumarbústað með honum
og fjölskyldu á Illugastaði og dró Reynsa litla með frá mesta
lærdómnum. Reyndar fer pabbi aftur á morgun og þá er bara að bíða
og hlakka til þess að hann komi næst, eftir reyndar alveg heilan
mánuð.
Er búin að vera að vinna mikið enda hlakka ég mikið til að fá
útborgað og kaupa mér nýtt sléttujárn því hitt glataðist og fara
svo að leita mér af nýrri myndavél sem skal sko líka vera fjólublá
eins og sú gamla!
Skemmtilegt símtal við hann Sigga vin minn var að enda núna. Haha
hann hringdi upphaflega og var að reyna að fá mig út að gera e-ð og
svo endaði samtalið á því að hann var að segja mér að fara að
fjölga mannkyninu eins og allir aðrir vinir hans, festa kaup á íbúð
og trúlofa mig líka! Hann stytti mér líka stundir í rúmar 30
mínútur því ég hef nákvæmlega ekkert að gera og get ekki farið út
vegna svo kallaðara "veikinda" en þó ekki veikindi beint og hann
Sigurður hló af þeim. En hann skilur ekki hvernig það er að vera
stelpa.
Annars þá ætla ég ekki að fara að unga út börnum á næstunni því ég
er ekki enn farin að lifa lífinu til fulls, ég á eftir að prófa
heilmargt og á eftir að mennta mig og svona, svo hef ég tíma til
þess að eignast börn. Maður trúlofar sig nú ekki eftir að verða
fimm mánaða samband og festir ekki kaup á íbúð með kærastanum í
9unda bekk og hann í 10unda svo að ég verð nú að bíða með þetta
allt saman. Samt langar mig að eignast barn frekar ung en alls ekki
alltof ung. Mig langar nefnilega ekki heldur að eignast barn of
gömul og vera liggur við komin á elliheimili þegar barnið er að
hefja lífið af alvöru.
Talandi um börn að þá er eini bróðir og eina systkyni pabba, hann
Guðmundur eða Gummi að fara eignast sitt fyrsta barn núna á
næstunni. Karlinn kominn með kerlingu orðinn að ég held 35 ára og
heldur betur tími til kominn að koma með litla frænku handa mér því
ég fæ bara frændur og bræður! Kesorn, litla sæta kærastan hans er
komin fram yfir tímann svo þetta fer allt að ske.
Jæja nú held ég að þetta sé komið gott og að þú hafir stytt þér
stundir með því að lesa þetta blogg. Þó held ég nú samt að svo sé
ekki.
Mér þætti gaman að fá komment.
Bless þar til næst.
»